Vilja vita laun stjórnarmanna slitastjórna Erla Hlynsdóttir skrifar 20. september 2012 18:30
Kröfuhafar í gamla Glitni telja að þóknanir til skilanefndarmanna hafi hækkað mjög og óska því eftir sundurliðun. Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar, segist ekki geta séð að sundurliðunin skipti nokkru máli. Í Viðskiptablaðinu í dag kemur fram að Gildi lífeyrissjóður og Lífeyrissjóður verslunarmanna ætla fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur með það erindi að fá sundurliðun á þóknunum til skilanefndarmanna. „Umbjóðendur mínir hafa bendingar um það að þóknanir til skilanefndarmanna og slitastjórna hafi hækkað verulega frá því sem var í upphafi starfa þeirra," segir Reimar Pétursson, lögmaður lífeyrissjóðanna. Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, komst ekki í viðtal en í samtali við fréttastofu bendir hún á að hvorki slitastjórn Kaupþings né Landsbankans gefi upp sundurliðun yfir þóknun líkt og lífeyrissjóðirnir óska eftir að slitastjórn Glitnis geri. Þannig sé engin slitastjórnanna sem gefi upp hvað hver einstaklingur, sem fyrir þær starfar, fær í laun á hverjum tíma. Steinunn segir alla kröfuhafa Glitnis hafa heildartölur yfir þóknun slitastjórnar. Hún segist ekki geta séð hvaða máli það skiptir fyrir lífeyrissjóðina að fá upplýsingarnar sundurliðaðar frekar. „Út frá einni heildartölu er auðvitað mjög erfitt að átta sig á því hvað sé í raun verið að borga, fyrir hvað vinnu er verið að borga, fyrir hvaða tíma er verið að greiða, hversu margir fá þessar þóknanir og hvað sé nákvæmlega fellt undir hvaða lið í svona yfirlitum," segir Reimar. Með störfum sínum fyrir slitastjórnin hefur Steinunn sjálf komist í hóp ríkustu íslendinga en samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins frá í sumar eiga hún og eiginmaðurinn um 340 milljónir króna.
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Innlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Fleiri fréttir Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Sjá meira