Innlent

Einfalt myndband um hlutverk forseta

BBI skrifar
Ungt fólk hefur búið til myndband sem skýrir hlutverk forseta Íslands á einfaldan hátt eins og það kemur fram í stjórnarskrá Íslands. Myndbandið er liður af verkefni sem nefnist Stjórnlög unga fólksins sem fólst í því að setja innihald stjórnarskrár Íslands fram á einfaldan hátt fyrir almenning.

Í myndbandinu er fjallað um hlutverk forsetans í lagasetningu, aðkomu hans að ríkisstjórnarmyndun, hlutverk hans í landskynningu o.fl.

Lögfræðingar hjá Umboðsmanni barna skrifuðu texta myndbandsins og starfsmenn Stjórnarráðs Íslands fóru yfir hann og staðfestu að um réttan skilning væri að ræða.

Verkefnið Stjórnlög unga fólksins var unnið á síðasta ári á sama tíma og Stjórnlagaráð Alþingis fundaði um nýja stjórnarskrá. Verkefnið var samstarfsverkefni UNICEF, Reykjavíkurborgar og Umboðsmanns barna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×