Innlent

Nýjar íslenskar koma í verslanir 10. júlí

Kartöflubændur á Norður- og Suðurlandi upplifðu mikinn uppskerubrest í ræktun sinni á síðasta ári.
Kartöflubændur á Norður- og Suðurlandi upplifðu mikinn uppskerubrest í ræktun sinni á síðasta ári.
Íslenskar kartöflur hafa verið ófáanlegar í búðum landsins síðan í apríl. Orsökin er gríðarlegur uppskerubrestur síðasta sumar, þegar kartöflubændur í Eyjafirði og Þykkvabæ töpuðu um 30 til 40 prósentum af uppskeru sinni.

Bjarni Jónsson, framkvæmdastjóri Sambands garðyrkjubænda, segir ljóst að bændur hafi orðið fyrir tugmilljóna króna tapi vegna uppskerubrestsins sem orsakaðist af miklu kuldatímabili frá maí í fyrra.

„Það skiptir mjög miklu máli að veðurlag sé gott á vaxtartíma. Kuldatíðin varð til þess að kartöflurnar dugðu ekki nema fram í apríl.“ Bjarni segir afar sjaldgæft að varan sé ófáanleg á síðustu mánuðum áður en ný uppskera kemur í verslanir. Einhverjir bændur hafa kannað hvort ekki sé hægt að fá bætur úr ríkissjóði vegna brestsins.

„Á sama tíma var eldgos svo það var ekki hægt að fá neitt,“ segir Bjarni. „Þrátt fyrir að þetta væru auðvitað líka náttúruhamfarir. Öll útiræktun grænmetis er svo háð veðri.“

Fyrsta kartöfluuppskeran í ár verður 10. júlí. „Þá verða allir rosalega glaðir því þetta er alveg gríðarlega góð vara þegar hún er svona ný,“ segir Bjarni. - sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×