Innlent

Gróf sig ofan í heita pottinn

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Það snjóaði gríðarlega á Dalvík í lok síðustu viku. Guðný Ólafsdóttir kennari og Sigurður Jörgen Óskarsson, eiginmaður hennar, fóru ekki varhluta af því. Heiti potturinn í garðinum hennar fór á kaf undir snjó. „Það snjóaði rosalega, maður hefur ekki séð svona snjó síðan 2004," segir Guðný í samtali við Vísi. Hún segir að mesta snjónum hafi kyngt niður á tveimur.

Hún segir að þau hjónin fari reglulega í heita pottinn og því voru góð ráð dýr þegar hann lokaðist undir öllum snjónum Guðný segir að það sé sérstaklega gott að fara í pottinn þegar veðrið er eins og það var í síðustu viku. „Það er aldrei betra en þegar veðrið lætur svona," segir hún.

Hún segir að það hafi verið mikið verk að moka frá pottinum. „En það hafðist, það var alveg til þess vinnandi," segir hún.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×