Innlent

Yfir 10 þúsund krefjast Betra lífs

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ.
Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ.
Nú hafa rúmlega 10 þúsund skrifað undir í kröfuna um Betra líf fyrir þolendur áfengis- og vímuefnavandans. SÁÁ kynnti átakið fyrir tæpum tveimur vikum. Þeir sem skrifa undir skora á stjórnvöld að verja 10 prósent af áfengisgjaldinu til að byggja upp endurhæfingu fyrir mikið veika áfengissjúklinga, aðstoð við fólk eftir meðferð til að komast til virkni í samfélaginu og úrræði fyrir börn sem alast upp við álag vegna mikillar ofneyslu á heimilum sínum.

„Við erum mjög ánægð með þennan áfanga," segir Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, í tilkynningu. „Fyrir tæpum tveimur vikum hafði enginn heyrt af þessu máli svo það er frábært að nú þegar hafi yfir 10 þúsund mann skrifað undir. Það er líka ánægjulegt að undirskriftirnar hafa safnast hraðar upp á síðustu dögum. Og við merkjum það af viðbrögðum fólks þegar við bjóðum því að skrifa undir að þetta mál njóti almenns og víðtæks stuðnings meðal þjóðarinnar," bætir hann við.

SÁA áætlar að áfengissjúklingar greiði yfir 6 milljarða króna árlega í áfengisgjald á Íslandi. Með því að verja 10 prósent af gjaldinu til átaks til að auka lífsgæði þessara hópa myndu um 1,1 milljarður króna renna til verkefnsins; eða um fimmtungur af því sem sjúklingahópurinn greiðir í áfengisgjaldið.

Á þessum hlekk er hægt að leggja sitt að mörkum og skrifa undir kröfuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×