Innlent

Ný lestrarstefna í grunnskólum borgarinnar

BBI skrifar
Mynd/Getty
Skóla- og frístundaráð samþykkti í gær nýja lestrarstefnu fyrir grunnskóla Reykjavíkur. Með henni á að auka vægi lestrar og ritunar á öllum skólastigum.

Með lestrarstefnunni á að stuðla að því að kennslan miðist við ólíka getu einstakra nemenda innan hópsins. Stefnt er að því að nemendur fái þjálfun í mismunandi lestrarlagi og lestrartækni, s.s. ítarlestri, nákvæmnislestri, leitarlestri og skimunarlestri. Loks er einnig markmiðið að lesefni nemenda sé fjölbreytt og áhugavert.

Lestrarstefnan var samþykkt nú í október á sama tíma og fram fer lestrarhátíð í tengslum við verkefnið Reykjavík, bókmenntaborg UNESCO.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×