Fáðu fría förðun hjá Smashbox 18. október 2012 13:00 Smashbox býður upp á fría förðun á í Hagkaup í Kringlunni um helgina. „
Við ætlum að fagna komu Smashbox til Íslands með því að bjóða kúnnunum okkar upp á fría förðun hjá förðunarfræðingum Smashbox á föstudaginn og laugardaginn í Hagkaup í Kringlunni,"segir María Guðvarðardóttir markaðsstjóri Smashbox. Herlegheitin hefjast klukkan 14.00 og allir fá mynd af sér hjá Óskari Hallgrímsyni, ljósmyndara eftir förðunina. Til að halda stuðinu gangandi mun plötusnúður þeyta skífum. Bóka þarf tíma hjá snyrtivörudeild Hagkaup í Kringlunni í síma 563-5221. Aðspurð nánar um þetta nýja merki segir María; „Smashbox kemur frá LA og var stofnað af þeim bræðrum Dean og Davis Factor sem eru langafa synir Max Factor. Þeir bræður eru báðir mjög þekktir ljósmyndarar og hugsa merkið út frá ljósmynda heiminum. Hver kona á alltaf að vera reiðubúin fyrir myndavélina. Með tilkomu allra myndasíðnanna, facebook, Instagram og myndavélasímanna eru myndir komnar á netið með það sama. Því viljum við að þú sért tilbúin, alltaf. Merkið hefur upp á ótrúlega margt að bjóða, við erum með mikið úrval af frábærum augnskuggum, kinnalitum, glossum og varalitum, allar vörurnar hjá Smashbox eru hannaðar til þess að endast lengi og það gera þær. Smashbox er einna þekktast fyrir primerana sína og við erum með primera fyrir allar húðtegundir. Allir draga þeir úr fínum línum og opinni húð og gera húðina fullkomna fyrir daginn. Primerinn er uppáhalds vara Davis Factor, því hún styttir honum þær stundir sem hann annars hefði þurft að eyða í eftirvinnslu eftir myndatökur. Einnig er Smashbox með frábæra color corrector primera, hver hefur sitt hlutverk þeir eru ýmist ætlaðir til þess að draga úr roða, lífga upp á þreytta húð eða taka burt dökka bletti. Okkur langar að kynna þessar frábæru vörur fyrir kúnnunum okkar, við viljum finna hinn fullkomna grunn fyrir hvern og einn og litapallettu sem hentar hverjum og einum. Við viljum að allir kúnnarnir okkar séu tilbúnir fyrir þau ljósmyndatækifæri sem hver dagur hefur upp á á bjóða."Förðunarfræðingur Kim Kardashian notar Smashbox vörurnar á Kim.
Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Sjá meira