Vindill sem Churchill reykti á Íslandi til sölu 5. október 2012 14:51 Winston Churcill.
Churchill klúbburinn á Íslandi ætlar að bjóða upp hálfreyktan vindil fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, Winston Churchill, sem hann reykti hér á landi þann 16. ágúst árið 1941. Breski stjórnmálaleiðtoginn var þá á heimleið yfir hafið eftir að hafa undirritað Atlantshafssáttmálann ásamt Roosevelt þáverandi Bandaríkjaforseta. Samkvæmt Churchill klúbbnum kom Churchill meðal annars við í Alþingishúsinu þar sem hann flutti ræðu af svölum þess fyrir mikinn mannfjölda sem hafði safnast saman á Austurvelli. Hálfreyktur vindill sem hann skyldi eftir sig í öskubakka í Alþingishúsinu er ennþá til í fórum Hjörleifs Hilmarssonar, en faðir hans Hilmar Árnason, var staddur á Alþingi þegar Churchill var þar. Í frétt sem birtist í Morgunblaðinu árið 2008 er atburðarrásinni lýst svona: „Hann lagði vindilinn frá sér við eina súluna í alþingishúsinu. Lengi vel áttum við úrklippu úr dagblaði þar sem sjá mátti Churchill og vindilinn við súluna. Blaðamaðurinn sem tók þá mynd ætlaði að ná vindlinum en pabbi varð á undan honum. Hann var alltaf þarna meira og minna því afi minn, Árni Bjarnason, var þingvörður á Alþingi á þessum tíma." BBC greindi svo frá því að árið 2010 að hálfreyktur vindill, sem Churchill hafði skilið eftir á ríkisstjórnarfundi, hafi verið seldur á uppboði fyrir 4.500 pund sem svarar til rétt tæpra 900 þúsund króna íslenskra. Eins og kunnugt er þá var stjórnmálaleiðtoginn mikill reykingarmaður. Vindillinn sem nú er til sölu, verður til sýnis á hádegisverðarfundi Churchill klúbbsins sem haldin verður að Nauthóli á morgun laugardaginn 6. október og hefst kl. 12 á hádegi. Þar mun Illugi Jökulsson fjalla um Íslandsheimsókn Churchills sem stóð daglangt, hvað hann gerði, hverja hann hitti og hvaða þýðingu hún hafði. Hádegisverðarfundurinn er öllum opin en skrá þarf þátttöku. Hægt er að bóka miða á hádegisverðarfundinn hér.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira