Hitafundur í Kópavogi - Gunnar og Guðríður sammála Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. september 2012 14:58 Kópavogur.
Meirihlutinn í bæjarstjórn Kópavogs klofnaði þegar verið var að taka afstöðu til tillögu Aðalsteins Jónssonar bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um tímatöflur íþróttafélaganna í gær. Heimildir Vísis herma að mikill hiti hafi verið á fundinum vegna málsins. Tillaga Aðalsteins var samþykkt með sjö atkvæðum gegn fjórum. Það sem vekur athygli er að Gunnar Birgisson var eini fulltrúinn úr meirihlutanum sem studdi tillögu Aðalsteins. Það var því fyrir tilstuðlan minnihlutans auk Aðalsteins og Gunnars sem tillagan var samþykkt. Aðalsteinn Jónsson segir að þessi ágreiningur við félaga sína í meirihlutanum hafi ekki verið heppilegur. „Ég er alinn upp í íþróttum og ég veit að ef liðið vinnur ekki saman þá nær maður ekki árangri," segir hann. Hann hafi hins vegar þurft að láta hjartað ráða í þessu máli. Ómar Stefánsson bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins telur ágreininginn hins vegar ekki hafa verið alvarlegan og beri frekar vott um sterkan meirihluta. „Þetta er gott meirihlutasamstarf, það er opið," segir Ómar. Það hafi verið hjartnæmt að sjá Guðríði Arnardóttur og Gunnar Birgisson sammála í bæjarstjórn. „Maður nánast táraðist þegar maður heyrði Guðríði lýsa því yfir hvað hún væri ánægð með þessa tillögu Gunnars," segir Ómar Stefánsson. Meirihlutasamstarf er með Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki og Y-Lista Kópavogsbúa. Samfylkingin, VG og Næst besti flokkurinn eiga svo fulltrúa í minnihluta.
Mest lesið Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Innlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Jói Fel málar með puttunum Innlent Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Innlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Innlent Fleiri fréttir „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla eltist við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Sjá meira