Katrín: Veit um fólk sem ætlar að keyra í sjö tíma til að ná leiknum Óskar Ófeigur Jónsson í Osló skrifar 18. september 2012 23:00
Katrín Jónsdóttir, landsliðsfyrirliði, lék sinn fyrsta leik í nokkra mánuði þegar hún leiddi íslenska liðið til sigurs á móti Norður-Írlandi á laugardaginn. Það var gott hljóð í Katrínu á blaðamannafundi í dag og hún er klár fyrir leik íslensku stelpnanna á móti Noregi á Ullevaal-leikvanginum í Osló á morgun. Þetta er lokaleikur liðanna í undankeppni EM og hreinn úrslitaleikur um sæti í úrslitakeppninni sem fer fram í Svíþjóð næsta sumar. „Leikurinn gekk ágætlega og staðan á mér er bara fín," sagði Katrín sem var búin að vera að glíma við tognun í læri í tvo mánuði. Það skiptir miklu máli fyrir liðið að fá langleikjahæsta leikmanninn aftur inn. Framundan er úrslitaleikur á móti Noregi og í boði er sæti á EM í Svíþjóð 2013. „Þær eru með gott lið og eru mjög skipulagðar. Þetta verður líkamlega krefjandi leikur og það lið mun vinna sem vill þetta meira," sagði Katrín. „Stríð er bara frábært orð," sagði Katrín aðspurð um áð hvernig Norðmenn skrifa um leikinn inn á heimasíðu norska sambandsins. Katrín fagnar því að Norðmenn ætli að bjóða fólki ókeypis á völlinn og vonast til þess að sjá marga Íslendinga í stúkunni. „Það er frábært að það sé frítt inn á völlinn því koma bara fleiri áhorfendur og það verður meira líf í kringum leikinn. Það er fullt af Íslendingum sem búa hér í Osló og í öllu Noregi. Við vitum um fólk sem ætlar að keyra sjö tíma til að koma og horfa á leikinn," sagði Katrín og bætti við: „Við munum það bara þegar við vorum í Frakklandi fyrir síðustu undankeppni. Þá mættu hundrað Íslendingar og við heyrðum langmest í þeim," sagði Katrín á blaðamannafundinum og Þóra B. Helgadóttir skaut inn í. „Hver Íslendingur sem mætir er á við tíu Norðmenn," sagði Þóra og það fer ekkert á milli mála að það er mikilvægt fyrir stelpurnar að heyra "Áfram Ísland" á Ullevaal-leikvanginum á morgun.
Fótbolti Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Yoro ekki til Íslands Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Fótbolti Fleiri fréttir Braut kynferðislega á Andy Carroll Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Yoro ekki til Íslands „Væri fínt ef þetta væru sex mánuðir“ Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met Hvað er Onana að gera? Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Sjá meira