Sólgos ná hámarki vorið 2013 20. ágúst 2012 21:45 Sólgos mynd/NASA „
Sólgos geta bæði haft alvarleg áhrif og lítil áhrif. Það er auðvitað eðlilegt að yfirvöld og ríkisstjórnir undirbúi sig fyrir að eitthvað alvarlegt gerist. Það er aldrei að vita hvað gerist." Þetta segir Ari Trausti Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur. Hann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis og ræddi þar við þáttastjórnendur um sólgos. Sólin gengur nú í gegnum tímabundna sveiflu þar sem myndun sólbletta nær hámarki. Mikil orka hleðst upp við þessa bletti. Þegar hún svo losnar úr læðingi myndast sólgos sem þeyta hlöðnum eindum út í geiminn. Stöku sinnum lemja þessar eindir yfirborð jarðar og geta valdið miklum usla. „Þessar agnir orsaka norðurljós en trufla líka rafsegulboð og bylgjur. Þannig geta þær haft áhrif á fjarskipti, útvarp, sjónvarp, raforkukerfið, gervihnetti og mögulega geimfara sem kunna að svífa um geiminn, segir Ari. Hver sólgosasveifla tekur um ellefu ár og er talið að hún muni ná hámarki á næstu mánuðum. „Núna er því spáð að vorið 2013 — eftir átta mánuði eða svo — að þá verði hámark. Það er verið að spá fyrir um hegðun sólar og hafa sumir spáð mesta hámarki síðan 1958," segir Ari. Erfitt getur verið að áætla hvaða áhrif svo öflug sólgos geta haft á jörðina enda hefur fjarskiptatækni tekið gríðarlegum framförum á síðustu áratugum.Hægt er að hlusta á viðtalið við Ara í heild sinni hér fyrir ofan.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Fleiri fréttir Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Sjá meira