Innlent

Lilja vill ekki verða formaður Samstöðu

Lilja Mósesdóttir, stofnandi Samstöðu - flokks lýðræðis og velferðar, ætlar ekki að gefa kost á sér í embætti formanns flokksins á landsfundi flokksins í byrjun október. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hún sendi fjölmiðlum í morgun. Hún segist ætla að axla þannig ábyrgð á fylgistapi flokksins undanfarna mánuði.

Hún verður þó áfram félagsmaður í Samstöðu. Fram að næstu alþingiskosningum ætlar hún að einbeita sér að störfum sínum á þingi sem hún segist hafa leitast við að nýta fagþekkingu sína til að bæta stöðu almennings á Íslandi í kjölfar efnahagshrunsins.

Yfirlýsinguna má sjá í heild sinni hér fyrir neðana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×