Sport

Helgi Sveinsson verður fánaberi Íslands í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helgi Sveinsson.
Helgi Sveinsson. Mynd/Jón Björn
Ármenningurinn Helgi Sveinsson fer fyrir íslenska hópnum á setningarhátíð Ólympíumóts fatlaðra í London í kvöld. Helgi verður nefnilega fánaberi Íslands við hátíðina.

Helgi er 33 ára gamall og mun keppa í 100 metra hlaupi, langstökki og spjótkasti á leikunum í London. Hann er rétt eins og hinir þrír keppendur Íslands á leikunum er að taka þátt í sínu fyrsta Ólympíumóti.

Ísland gengur inn á eftir Ungverjum og næsta þjóð á eftir Íslandi eru Indverjar. Búist er við mikilli sýningu í kvöld en löngu er orðið uppselt á setningarhátíðina og að þessu sinni er um metsölu að ræða í miðasölu á Ólympíumót fatlaðra.

Allir fjórir keppendur Íslands á leikunum munu keppa í sinni fyrstu grein á föstudaginn en Helgi keppir þá í langstökki. Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir verður hinsvegar fyrst íslensku keppendanna til að láta að sér kveða í London en hún er sú eina sem keppir um morguninn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×