Innlent

Brot Vítisenglanna varða allt að sextán ára fangelsi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Brotin sem Einar Ingi Marteinsson og aðrir aðilar tengdum Vítisenglum eru grunaðir um að hafa framið gegn konu í desember síðastliðnum eru talin varða allt að sextán ára fangelsi. Þeir eru grunaðir um að hafa ráðist inn á heimili konu og beitt hana alvarlegu ofbeldi svo hún hlaut áverka af. Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurðum Hæstaréttar frá því á föstudag sem voru birtir á vef Hæstaréttar í dag.

Þar staðfesti Hæstiréttur gæsluvarðhaldsúrskurði Héraðsdóms Reykjaness yfir þremur mönnum sem grunaðir eru um aðild að árásinni. Hæstiréttur úrskurðaði jafnframt Einar Marteinsson í áframhaldandi gæsluvarðhald til 18. júní næstkomandi, en það er lokafrestur fyrir Héraðsdóm Reykjaness að kveða upp dóm í málinu.

Héraðsdómur Reykjaness hafði áður úrskurðað að Einar skyldi látinn laus úr gæsluvarðhaldi og var sá úrskurður byggður á því að fyrir lægi að Einar hefði ekki verið staddur á brotavettvangi þegar brotið var framið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×