Innlent

Verulega dregið úr alvarlegum slysum bifhjólamanna

Bifhjólamenn. Mynd úr safni.
Bifhjólamenn. Mynd úr safni.
Verulega hefur dregið úr slysum milli ára og þá sérstaklega alvarlegum slysum meðal bifhjólamanna. Þetta kemur fram í slysaskýrslu Umferðarstofu fyrir árið í fyrra.

Heildarfjöldi slasaðra og látinna bifhjólamanna á síðasta ári var 74 en árið áður voru þeir 81 talsins. Þetta er u.þ.b. 9% fækkun og hefur þessi fjöldi stöðugt minnkað frá árinu 2008 þegar slysin voru 107 talsins.

Einn maður lét lífið í fyrra á bifhjóli en það slys varð í júlí þegar karlmaður ók léttu bifhjóli út af vegi í Víkum á Skaga í Austur Húnavatnssýslu.

Hægt er að lesa skýrsluna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×