Innlent

Safnaði hálfri milljón og hárið fékk að fjúka

Erna Kristín Stefánsdóttir lét raka af sér hárið í morgun eftir að henni tókst að safna hálfri milljón til styrktar ABC-barnahjálpar. Erna Kristín var í viðtali við Ísland í dag í síðustu viku þar sem hún sagði frá áskoruninni.

Í Íslandi í dag í kvöld verður fylgst með því þegar Erna Kristín fór á hárgreiðslustofuna í morgun og lét hárgreiðslumanninn raka hárið. Viðbrögðin voru stórkostleg þegar hún leit í spegil.

Ísland í dag er í opinni dagskrá á Stöð2 og hér á Vísi klukkan 18:55.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×