Innlent

Mikil aukning í framleiðslu fíkniefna

Í kjölfar efnahagsþrenginganna og bankahrunsins árið 2008 hefur framleiðsla á fíkniefnum hér á landi aukist hratt en málum vegna innflutnings á fíkniefnum heldur fækkað. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um fíkniefnaframleiðslu á Íslandi á árunum 2005 til 2011.

Þeir einstaklingar sem hafa verið kærðir í þeim málum er varða framleiðslu fíkniefna á síðustu árum, eru 90 prósent þeirra karlar. Sömuleiðis eru níu af hverjum tíu íslenskir ríkisborgarar, en af erlendum brotamönnum eru það helst Pólverjar, Litháar og Víetnamar sem framleiða fíkniefni hér á landi.

Hægt er að nálgast skýrsluna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×