Innlent

Með þungar áhyggjur af stöðu háskóla

Guðlaug Kristjánsdóttir formaður BHM
Guðlaug Kristjánsdóttir formaður BHM
Stjórn Bandalags háskólamanna, BHM, lýsir þungum áhyggjum af stöðu háskólastigsins í íslensku menntakerfi, en Ísland er eina landið innan OECD sem ver minna fé til menntunar hvers nemanda á háskólastigi en á grunnskólastigi. En framlag á hvern nemanda á háskólastigi er 25 prósentum undir meðaltali OECD ríkjanna.

„Stjórn BHM telur þessar staðreyndir kalla á endurskoðun og endurskipulag í menntamálum á Íslandi, ekki síst í ljósi mikilvægis háskólamenntunar fyrir framþróun á vinnumarkaði, nýsköpun og hagvöxt," segir í ályktuninni. Þá er bent á að háskólar hér á landi hafi undanfarin ár búið við aukið álag vegna fjölgunar nemenda á tímum aðhalds í rekstri og hafa framlög til háskóla verið skert umtalsvert frá hruni „sem hlýtur að teljast öfugþróun þegar litið er til ársskýrslu OECD."

Stjórnin segir að slíkar ráðstafanir beri vott um stefnuleysi í málefnum háskólastigsins. „Annað einkenni stefnuleysis og fjársveltis er óhófleg notkun illa launaðrar stundakennslu innan íslenskra háskóla. Það er krafa stjórnar BHM að mannaflaþörf í háskólum landsins verði metin og undirmálsgreiðslum til stundakennara hætt."

Að lokum krefst stjórnin þess að stjórnvöld setji gæðamál íslenskra háskóla í forgang við stefnumótun í mennta- og vinnumarkaðsmálum „og þá sérstaklega rannsóknastarf sem er grundvöllur gæða í háskólastarfi og forsenda nýsköpunar og þróunar á vinnumarkaði."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×