Innlent

Reynslusögur af nauðgunum streyma inn

BBI skrifar
Frá druslugöngu í Boston.
Frá druslugöngu í Boston. Mynd/AP
Vefsíðan drusluganga.org mun birta reynslusögur nauðgunarfórnarlamba næstu daga, m.a. til að minna á hina svonefndu meintu-druslugöngu sem fram fer næsta laugardag.

Á síðunni birtist í gær reynslusaga stúlku sem var nauðgað. Hún vakti mikla athygli. „Eftir það opnaðist bara einhvers konar flóðgátt og yfir okkur hafa streymt reynslusögur kvenna sem vilja deila sögum sínum með þjóðinni," segir María Lilja Þrastardóttir, talskona druslugöngunnar. Önnur greinin birtist í dag undir yfirskriftinni Stundum gleymi ég að sökin var ekki mín.

Sögurnar munu birtast á síðunni, alla vega fram að göngunni sem verður farinn næsta laugardag en mögulega lengur ef sögur halda áfram að berast. Sögurnar munu ýmist birtast undir dulnefnum eða eigin nöfnum allt eftir óskum höfunda. Sumar munu jafnvel birtast með mynd.

Meinta-druslugangan verður farin frá Skólavörðuholtinu klukkan 2 á laugardaginn. Þetta er annað árið sem gangan fer fram en í fyrra tóku tvö til þrjú þúsund manns þátt.

Göngunni er ætlað að minna á að ábyrgðin á nauðgun getur aldrei verið fórnarlambsins megin, sama hversu druslulega það hegðar sér. „Þessi boðskapur á ótrúlega vel við núna eftir þennan pistil hans Guðbergs og niðurfellingu Gillz-málsins," segir María.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×