Innlent

Vildu fjarlægja skreytingar vegna kvenréttindadagsins

Skreytingarnar umdeildu eru bleiku blöðrurnar sem Júlíus segir raunar vera meira í anda 17. júní hátíðarhalda.
Skreytingarnar umdeildu eru bleiku blöðrurnar sem Júlíus segir raunar vera meira í anda 17. júní hátíðarhalda.
„Þetta voru bleikar blöðrur utan á ræðustólnum og þær voru truflandi, meðal annars skyggðu þær á ljósið," sagði Júlíus Vífill Ingvarsson sem óskaði eftir því að skreytingar í tilefni af Kvenréttindadeginum yrðu teknar niður í upphafi ræðu sinnar á borgarstjórnarfundi í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag.

Um var að ræða bleikar helíumfylltar blöðrur sem höfðu verið festar við ræðupúltið. Þá gerði Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, einnig athugasemdir við skreytingarnar.

Forseti borgarstjórnar, Björk Vilhelmsdóttir, stóð þá upp og kvaðst ekki vilja beita forsetavaldi sínu til að taka þá ákvörðun að fjarlægja bleiku blöðrurnar án þess að vilji meirihluta borgarstjórnar lægi fyrir.

Júlíus Vífill segir í samtali við Vísi að það verði að gæta virðingar í húsakynnum borgarstjórnar eins og í sölum Alþingis. Hann tók hinsvegar sterklega fram að borgarstjórn ætti að sjálfsögðu að minnast dagsins með virðingu, „en þá finnst mér bleikar blöðrur frekar í anda 17. júní hátíðarhalda," bætti hann við að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×