Innlent

Kynbundinn launamunur í ráðuneytinu leiðréttur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ögmundur Jónasson er innanríkisráðherra.
Ögmundur Jónasson er innanríkisráðherra.
Innanríkisráðuneytið hefur ákveðið að leiðrétta kynbundinn launamun í ráðuneytinu. Við jafnlaunaúttekt kom í ljós 2,0% óútskýrður launamunur meðal sérfræðinga ráðuneytisins. Á vef ráðuneytisins kemur fram óviðunandi sé að konur og karlar njóti ekki sömu launa fyrir sömu störf og fagnar úttektinni sem gefur tækifæri til að leiðrétta þessa skekkju.

Samkvæmt jafnréttisáætlun ber að kanna árlega hvort fyrir hendi sé kynbundinn launamunur og jafnframt er yfirstjórn gert að skýra frá því hvernig hún hyggist bregðast við því. Sérstaklega skal kanna hvort kynbundinn launamunur sé á fastri yfirvinnu eða aukagreiðslum, s.s. bílastyrkjum eða öðrum hlunnindum.

Við könnun í innanríkisráðuneytinu kom í ljós að kynbundinn launamunur milli kvenna og karla í sérfræðingsstöðum var allt að 3,6%. Að teknu tilliti til menntunar, starfsaldurs og reynslu var óútskýrður launamunur 2,0%. Ekki kom fram launamunur varðandi fasta yfirvinnu.

Ráðuneytið hefur brugðist við þessum niðurstöðum með því að leiðrétta muninn. Í því skyni var launum nokkurra starfsmanna breytt og hlutaðeigandi tilkynnt um það í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×