Innlent

Hringdi í lögregluna út af vampíru

Ekki er vitað hvort Drakúla greifi hafi sjálfur verið á ferð. Þessi er auðvitað leikinn af Christopher Lee.
Ekki er vitað hvort Drakúla greifi hafi sjálfur verið á ferð. Þessi er auðvitað leikinn af Christopher Lee.
Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu, sem og annarstaðar, þurfa að vera við öllu búnir á vaktinni eins og sýndi sig enn og aftur í gærkvöld. Þá hringdi maður á miðjum aldri í 112 og sagði að það væri verið að brjótast inn til hans. Maðurinn hljómaði eins og hann væri logandi hræddur og því var farið tafarlaust á vettvang.

Tilkynnandi tók sjálfur á móti lögreglumönnunum þegar þeir komu á staðinn og upplýsti að það hefði verið vampíra, eða blóðsuga, sem hefði látið ófriðlega á stigaganginum. Málið var að sjálfsögðu tekið alvarlega og leituðu lögreglumenn af sér allan grun en enga vampíru var að finna í húsinu.

Manninum var bent á að hringja aftur í lögregluna ef vampíran birtist á nýjan leik og virtist það róa hann nokkuð. Ekki kom þó til þess og má því telja að vampíran hafi haldið sig fjarri og hvarf inn í nóttina, eins og blóðsugum er einum lagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×