Innlent

Landhelgisgæslan æfði með Þjóðverjum

JHH skrifar
Frá æfingunni í dag.
Frá æfingunni í dag. mynd: LHG/GBA
Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GNA var í morgun við æfingar með þýsku herskipunum Frankfurt og Emden á Faxaflóa. Með báðum skipunum voru æfðar hífingar, aðflugi stjórnað frá skipinu með þeirri tækni sem notuð er í mjög litlu skyggni og lending á  þyrlupalli. Þyrlan var fest niður, sleppt og tekið á loft. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni gekk æfingin mjög vel og var góð þjálfun fyrir báða aðila. Nokkur munur virðist vera á verklagi Þjóðverjanna og Landhelgisgæslunnar á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×