Megrunarlausi dagurinn snýst um virðingu 6. maí 2012 17:57 „
Þetta snýst allt um virðingu," segir Geir Gunnlaugsson, landlæknir, aðspurður um viðhorf sitt til Megrunarlausa dagsins sem haldinn er hátíðlegur í dag. Hann bendir á að samfélagið móti sjálfsmynd einstaklinga og að það sé nauðsynlegt að fagna öllum birtingarmyndum manneskjunnar. Á Megrunarlausa deginum eru einstaklingar hvattir til þess að láta af viðleitni sinni til þess að grennast og leyfa sér að upplifa fegurð og fjölbreytileika mismunandi líkamsvaxtar. Þannig sé hægt að berjast gegn megrun, átröskunum og fordómum vegna holdafars. „Átraskanir, sama hvort við tölum um anorexíu eða lystarstol, hefur verið vandamál í gegnum tíðina og þá sérstaklega hjá stúlkum," segir Geir. „Þessir sjúkdómar eru hugsanlega viðbrögð við þeim hugmyndum um heilbrigt líferni sem eru til staðar í samfélaginu." Geir segir útlitsdýrkun vera afleiðingu af þessum ýktu hugmyndum um eðlilegt útlit og almennt heilbrigði. Hann telur þá bjöguðu sjálfsmynd sem sumir einstaklinga hafi sé nátengd samfélaginu - því sem Megrunarlausi dagurinn tvímælalaust jákvæður. „Öll líkamsrækt er af hinu góða og það er hægt að ná góðri heilsu og vellíðan með margskonar hætti," segir Geir. „En okkur er öllum hollt að bera virðingu hvort fyrir öðru - óháð því hvernig við lítum út. Við erum til í margskonar myndum, bæði grönn og í þyngra lagi. Umburðarlyndi í garð náungans er nauðsynlegt og ef þessi dagur vekur athygli á því, þá er hann auðvitað af hinu góða."
Tengdar fréttir Megrunarlausi dagurinn er í dag Megrunarlausi dagurinn - alþjóðlegur baráttudagur gegn megrun, átröskunum og fordómum vegna holdarfars - er haldinn hér á landi í sjötta sinn í dag. 6. maí 2012 10:45 Mest lesið Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Innlent Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Innlent Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins Erlent „Sprengjuflugvélar er ógnin sem við sjáum hér“ Innlent ICE dregur saman seglin í Minneapolis Erlent Ósammála um að það sé kostur að vera formaður utan þings Innlent „Eins og við séum komin aftur á 1. mars 1989“ Innlent Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni Innlent Átta ára dómur Sigurðar Ragnars staðfestur Innlent Viðbrögð Ölmu mikil vonbrigði Innlent Fleiri fréttir Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Ósammála um að það sé kostur að vera formaður utan þings Tengslanet veikara og andleg líðan verri í dag en fyrir rýmingu „Sprengjuflugvélar er ógnin sem við sjáum hér“ „Eins og við séum komin aftur á 1. mars 1989“ Vinnur fallega muni úr íslenskum trjám ASÍ og SA telja stjórnvöld á villigötum Jákvæð skref hafi verið tekin í vinnuhópi um málefni Grænlands Forstjóri í beinni, herþotur og bjór á vellinum Stúlkan er fundin Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni Ingibjörg fljót að rífa upp boxhanskana Hækkuðu gjaldið í skugga stúdentamótmæla Bjórinn nú leyfður á vellinum Íhugar að bjóða fram til varaformanns Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Lýsa eftir bíl sem var stolið fyrir utan Landspítalann Rafmagnslaust á Siglufirði Ríkisfjármálaleg tímasprengja, mistök eða tímabært réttlætismál? Átta ára dómur Sigurðar Ragnars staðfestur Vísbendingar um gerviverktöku í geiranum Hálf-íslenskur hermaður hluti af sænsku herflugsveitinni Mikið svifryk þrátt fyrir rykbindingu Blikkuðu í klukkustundir vegna skaddaðs jarðstrengs Samtök atvinnulífsins höfðu betur í Félagsdómi Fékk „hjálp“ frá heilbrigðiseftirlitinu til að velja sig sjálfa Baráttan um formannsembætti Framsóknar Viðbrögð Ölmu mikil vonbrigði Lýsa miklum vonbrigðum með viðbrögð Ölmu Vilja ráðast í breytingar á gamla bandaríska sendiráðinu Sjá meira
Megrunarlausi dagurinn er í dag Megrunarlausi dagurinn - alþjóðlegur baráttudagur gegn megrun, átröskunum og fordómum vegna holdarfars - er haldinn hér á landi í sjötta sinn í dag. 6. maí 2012 10:45