Erlent

Apache herþyrla hrapaði í Afganistan

Ótrúlegt myndskeið sem sýnir bandaríska Apache herþyrlu hrapa í Afganistan birtist á vefsíðunni YouTube í dag.

Samkvæmt Sky fréttastofunni átti slysið sér stað í febrúar. Þó ótrúlegt megi virðast þá lést enginn í slysinu.

Ekki er vitað hvort að bilun hafi orðið stýrikerfi þyrlunnar eða hvort að þyrluflugmaðurinn hafi verið að sýna listir sínar.

Atvikið átti sér stað við útvarðarstöð bandaríska hersins í Marzak í Afganistan.

Apache þyrlurnar eru notaðar af breskum og bandarískum hermönnum. Fyrir nokkru lenti Harry bretaprins í svipuðu slysi þegar hann flaug þyrlu af sömu tegund.

Hægt er að sjá myndbandið hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×