Erlent

Sóknarmenn Barselóna senda andspyrnumönnum í Sýrlandi skilaboð

Sóknarleikur Lionel Messi og félaga í Barselóna er svo öflugur að þeir eru færir um að miðla leynilegum skilaboðum til andspyrnumanna í Sýrlandi með sendingum sínum - þessu halda opinberir fjölmiðlar í Sýrlandi fram.

Það vottaði ekki fyrir kaldhæðni í fréttaþulnum á opinberu sjónvarpsstöðinni Addounia TV þegar hann útskýrði hvernig sendingar Messi og sóknarmanna Barselóna séu í raun dulbúin skilaboð til andspyrnumanna.

Stutt myndbrot úr leik Barselóna og Real Madríd frá því í desember var varpað upp á skjáinn og benti þulurinn á hvernig sendingarnar tákna þá leið sem andspyrnumennirnir munu smygla vopnum til landsins.

„Fyrst sjáum við hvernig vopnin koma frá Líbanon," sagði þulurinn þegar fótboltamaður hefur sóknina. „Síðan færa þeir vopnin til Homs," sagði hann þegar annar liðsmaður Barselóna gefur inn á miðju.

„Vopnunum er síðan dreift til hryðjuverkamanna í borginni," sagði þulurinn.

Samkvæmt greiningu fréttamanna á Addounia TV táknar lokaspyrna Messi vel heppnaðan flutning vopna til austurhluta Sýrlands.

Áhugasamir geta kynnt sér greiningu Addounia TV hér fyrir ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×