Erlent

Bæjarstjóri sýndi frumkvæði og rak sjálfan sig

Dan O'Leary sýndi frumkvæði í starfi sínu.
Dan O'Leary sýndi frumkvæði í starfi sínu. mynd/Keller city
Bæjarstjórinn í bænum Keller City í Texas í Bandaríkjunum hefur rekið sjálfan sig. Hann tilkynnti um ákvörðunina í síðustu viku. Til útskýringar sagði hann að bærinn hefði einfaldlega ekki á þörf á sér.

Dan O'Leary hefur gegnt embætti bæjarstjóra frá árinu 2007. Hann var með 176.000 dollara í árslaun en það jafngildir rúmum 22 milljónum íslenskra króna.

Um 40.000 manns búa í Keller City.

Tveir aðstoðarbæjarstjórar eru í bænum og sagði O'Leary að bærinn hefði einfaldlega ekki þörf á þremur bæjarstjórum.

Hann er 57 ára gamall og hefur ekki í hyggju að fara á eftirlaun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×