Innlent

Nýtt samkomulag um framtíðaruppbyggingu Landspítala og Háskóla

Frá undirskriftinni í dag.
Frá undirskriftinni í dag.
Jón Gnarr, borgarstjóri, Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra og Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra undirrituðu í dag samkomulag um lóðir og skipulagsmál í tengslum við framtíðaruppbyggingu Landspítala Háskólasjúkrahúss og Háskóla Íslands norðan Hringbrautar.

Í tilkynningu segir að í fyrirliggjandi tillögum að deiliskipulagi svæðisins sé gert ráð fyrir að það byggingarmagn sem áður hafði verið gert ráð fyrir á fjórum reitum (A, B, C og U) verði nú haganlega fyrir komið á tveimur (A og B).

„Samningar ríkisins og Reykjavíkurborgar um lóðamál LSH og byggingarrétt fyrir spítalann og HÍ teygja sig allt aftur til ársins 1969. Þeim var síðast breytt árið 2006. Fulltrúar framkvæmda- og eignasviðs og skipulags- og byggingarsviðs hafa unnið að endurskoðun samninga Reykjavíkurborgar og ríkisins með það að markmiði að endurheimta byggingarétt á C og U-reit auk þess sem áhersla hefur verið lögð á að Reykjavíkurborg fái í sinn hlut byggingarrétt að randbyggð við Hringbraut, neðan sjúkrahússlóðarinnar," segir ennfremur og því bætt við að um sé að ræða verðmætt byggingarland í hjarta Reykjavíkur.

„Í hlut ríkisins kemur aukið byggingarmagn á A og B-reit skv. núverandi tillögu að deiliskipulagi svæðisins. Jafnframt komast aðilar að samkomulagi um endurskoðun deiliskipulags á norðurhluta svæðisins, þ.e. núverandi athafnasvæði Landspítalans. Samkomulagið er háð endanlegu samþykki og gildistöku deiliskipulags á svæðinu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×