Leggst gegn stuðningi borgarinnar við Dagsetur Hjálpræðishersins Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. mars 2012 15:45 Frá Dagsetri Hjálpræðishersins á Eyjaslóð. mynd/ valli.
Þorleifur Gunnlaugsson, fulltrúi VG í velferðarráði Reykjavíkurborgar, lagðist gegn því á fundi ráðsins að borgin styddi við rekstur Hjálpræðishersins á dagsetri fyrir utangarðsmenn á Eyjaslóð í Reykjavík. Á fundi ráðsins þann 1. mars síðastliðinn voru kynntar tillögur að aukinni þjónusti við utangarðsfólk með svokölluðu færanlegu teymi borgarvarða, eflingu Dagseturs og samstarfi við Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands. Gert er ráð fyrir að þessi aukna þjónusta kosti borgina um 40 milljónir. Þorleifur fagnaði þessari auknu þjónustu að undanskildu úrræði Hjálpræðishersins. „Það er þó miður að Reykjavíkurborg skuli jafnhliða þessari ákvörðun kjósa að beina utangarðsfólki í auknum mæli í Dagsetur á vegum gildishlaðinna lífsskoðunarsamtaka. Fulltrúi Vinstri grænna hefur ekkert við sjálfboðastarf Hjálpræðishersins að athuga en telur ekki ásættanlegt að verið sé að veita fjármagni og faglegri aðstoð af hálfu borgarinnar til úrræðis á þeirra vegum þegar aðrir valkostir eru ekki til staðar. Vandi flestra ef ekki allra sem teljast til utangarðsfólks er heilbrigðisvandi sem taka á sömu tökum og önnur heilbrigðisvandamál en ekki í anda trúboðasjúkraskýla liðinna alda," segir Þorleifur í bókun sem hann lagði fram. Sjálfstæðismenn gera líka athugasemdir við tillögurnar og segja að þær þarfnist ítarlegri skoðunar. „Gera verður alvarlegar athugasemdir við málið. Í fyrsta lagi að engin formleg þarfagreining fór fram og því fráleitt að velferðarráð samþykki tillögurnar án ítarlegri skoðunar," segja sjálfstæðismenn í bókun sinni.
Mest lesið Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Innlent Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Erlent Fleiri fréttir Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Sjá meira