Innlent

Fá skip á sjó vegna óveðurs

Sára fá fiskiskip eru á sjó vegna óveðurs á miðunum nema hvað hópur loðnuskipa er út af norðanverðu Snæfellsnesi.

Vaktstöð siglinga og stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafa vakandi augu með þremur erlendum flutningaskipum suðaustur af landinu. Eitt þeirra hefur varpað ankerum á Norðfjarðarflóa og bíður þess að veður lægi, en hin tvö halda sjó suður af landinu.

Skipin eru stór og hafa ekki orðið fyrir áföllum, eftir því sem best er vitað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×