Meira en helmingur þjóðarinnar vill kosningar í vor 10. febrúar 2012 18:42
Meirihluti landsmanna vill að þing verði leyst upp og boðað til alþingiskosninga í vor. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins. Um tuttugu prósent þeirra sem styðja ríkisstjórnina vilja kosningar. Hringt var í átta hundruð manns sem valdir voru með slembiúrtaki úr þjóðskrá dagana 8. og 9. febrúar. Spurt var: Á að leysa upp þing og boða til alþingiskosninga í vor og tóku 86 prósent afstöðu til spurningarinnar. Í heild sögðust 56 prósent svarenda já og 44 prósent sögðu nei. Hlutfallið er það sama hjá bæði konum og körlum. Þegar litið er á afstöðu eftir stjórnmálaflokkum sést að stjórnarflokkarnir tveir Samfylking og Vinstri grænir vilja síst að boðað verði til kosninga, þó eru 20 prósent í hvorum flokki sem vilja leysa upp þing og kjósa á ný. Það kemur lítið á óvart að stjórnarandstöðuflokkarnir vilja fá kosningar núna í vor eða 70 prósent framsóknarmanna, yfir 80 prósent sjálfstæðismanna og 75 prósent þeirra sem ætla að kjósa Hreyfinguna. Athygli vekur að einungis þriðjungur kjósenda Bjartrar Framtíðar, framboðs Guðmundar Steingrímssonar og Besta flokksins vilja ganga til kosninga strax í vor á meðan tæp 70 prósent kjósenda Samstöðu, flokks Lilju Mósesdóttir, vilja kosningar sem fyrst. Þá vilja tæp 60 prósent kjósenda á aldrinum 18 til 49 ára kjósa fyrr á móti 53 prósentum þeirra sem eru eldri en fimmtíu ára.
Mest lesið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Sjá meira