Keflavíkurflugvöllur veitti bestu þjónustuna 15. febrúar 2012 15:55
Keflavíkurflugvöllur veitti besta þjónustu evrópskra flugvalla með undir 2 milljónum farþega á ári að mati þátttakenda í könnun alþjóðasamtaka flugvalla, Airports Council International. Í tilkynningu frá Isavia segir að flugvöllurinn hafi raunar fengið flest heildarstig allra evrópskra flugvalla líkt og árið 2009 en taldist nú í nýjum flokki smærri flugvalla sem ekki koma til álita í fyrsta sæti allra flugvalla. „Þjónustukönnunin er framkvæmd á 186 helstu flugvöllum heims, þar af 54 í Evrópu og svara farþegar spurningum um gæði 36 þjónustuþátta. Niðurstöður eru birtar ársfjórðungslega og heildarárangur árlega. Keflavíkurflugvöllur hefur jafnan verið í efstu sætum evrópskra flugvalla frá því að hann hóf þátttöku í könnuninni árið 2004. Hann var valinn besti flugvöllur Evrópu árið 2009 og var í öðru sæti árið 2010 ásamt því að vera í þriðja sæti á heimsvísu árið 2004 í flokki flugvalla með undir fimm milljónir farþega á ári," segir ennfremur. Þá segir að Keflavíkurflugvöllur skari jafnan framúr í heildaránægju farþega, kurteisi og hjálpsemi starfsfólks, auðveldu tengiflugi, notalegu andrúmslofti, hreinlæti og biðtíma í öryggisleit. „Einnig eru farþegar mjög ánægðir með skjóta afgreiðslu farangurs, aðgengi að farangurskerrum, bankaþjónustu og veitingastaði í flugstöðinni. Möltuflugvöllur var valinn besti evrópski flugvöllurinn með yfir 2 milljónir farþega en Incheonflugvöllur í Suður Kóreu bestur á heimsvísu." Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia, sem annast rekstur vallarins segir að þar á bæ séu menn stoltir af þessum glæsilega árangri sem staðfestii að starfsfólk Keflavíkurflugvallar sé fagfólk á heimsmælikvarða. „Þjónustukönnun ACI er mikilvægt verkfæri til þess að meta gæði einstakra þjónustuþátta og frammistöðu við að mæta þörfum viðskiptavina. Ég óska öllu starfsfólki á Keflavíkurflugvelli til hamingju með þennan glæsilega árangur", segir Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia sem annast rekstur Keflavíkurflugvallar." „Þjónusta við flugfarþega á Keflavíkurflugvelli nær til allra flugvallarstarfsmanna. Fagmennska og samstillt átak þeirra tryggir að afgreiðsla verði ávallt með skjótum og öruggum hætti. Forráðamenn Keflavíkurflugvallar og rekstraraðila fagna þessum frábæra árangri og þakka starfsmönnum glæsilega frammistöðu."
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sjá meira