Innlent

Minntust björgun breskra hermanna

Jens G. Helgason flytur ávarp og les úr gömlum frásögnum af atburðunum. Ljósmynd: Pétur Sörensson.
Jens G. Helgason flytur ávarp og les úr gömlum frásögnum af atburðunum. Ljósmynd: Pétur Sörensson.
Nú um helgina eru liðin 70 ár frá því að heimilisfólkið á Veturhúsum við Eskifjörð bjargaði yfir 40 breskum hermönnum, sem höfðu farið fótgangandi frá Reyðarfirði yfir fjalllendið áleiðis til Eskifjarðar. Þeir lögðu af stað um morguninn hinn 20. janúar í blíðviðri en hrepptu voðaveður, rok og úrhelli þegar leið á daginn. Alls voru 60 breskir hermenn í þessari för og létust 8 þeirra.

Þessarar ferðar og björgunarafreksins var minnst í dag inn við tóftir Veturhúsa, með blómvendi, friðarljósum og fánum auk minningarorða og lestri úr samtíma heimildum. Magnús Pálsson, einn þeirra sem stóðu að björgun hermannanna, var boðið í breska sendiráðið, þar sem hann tók á móti viðurkenningu og virðingarvottir frá embættismanni breska hersins.

Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, segir að Magnús sé vel að þessari virðingu kominn enda hafi hann, syskini hans og móðir sýnt fádæma fórnarlund og ósérhlífni við björgun hrakinna hermanna í aftakaveðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×