Innlent

"Þarf að endurskoða námsefni stjórnmálaskóla Samfylkingarinnar“

Hjálmar Hjálmarsson.
Hjálmar Hjálmarsson.
Tillaga um breytt vinnufyrirkomulag í bæjarstjórn Kópavogs, sem Hjálmar Hjálmarsson, bæjarfulltrúi Næst besta flokksins í Kópavogi, lagði fram á bæjarstjórnarfundi í dag, komst ekki á dagskrá. Í samtali við Hjálmar sagðist hann hafa beðið um leyfi fundarins til þess að leggja fram dagskrátillögu með afbrigðum, sem gekk út á að í stað meirihlutasamstarfs, yrði komið á samvinnu fulltrúa allra framboða.

Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, fór fram á að atkvæði yrði greidd um það hvort tillagan fengist á dagskrá. Tillögunni var hafnað með öllum greiddum atkvæðum Sjálfstæðisflokksins, Vinstri grænna, og tveimur fulltrúum af þremur hjá Samfylkingunni.

„Mér skilst að þetta sé fáheyrt. Stjórnsýslufræðingur sagði mér að tillöguréttur í lýðræðislegu umhverfi sé mjög ríkur," segir Hjálmar sem vill þó ekki meina að bæjarfulltrúarnir séu að hafna hugmyndinni alfarið, enda ekki fengið að gaumgæfa hana nægilega vel til þess að taka afstöðu til hennar. Hann bendir á að jafnvel á Alþingi á dögunum hafi því verið hafnað að vísa frá tillögu Bjarna Benediktssonar, um að afturkalla ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra.

Stjórnarkreppa ríkir í Kópavogi eftir að Næst besti flokkurinn, Listi Kópavogsbúa, Samfylkingin og VG slitu meirihlutasamstarfi eftir að bæjarstjóranum var sagt upp störfum. Næst besti flokkurinn og Listi Kópavogsbúa gátu ekki sætt sig við vinnubrögðin sem þeir sökuðu Samfylkinguna um að sýna við uppsögnina.

Hjálmar segist lesa í atkvæðagreiðsluna, „án þess að ég hafi eitthvað fyrir mér í því," áréttar hann og bætir við: „Að Sjálfstæðisflokkurinn, VG og Samfylkingin eru að fara mynda meirihluta."

Hjálmar segir Samfylkinguna haga sér undarlega og segir: „Það er alveg ljóst að það þarf að endurskoða námsefni stjórnmálaskóla Samfylkingarinnar."

Hér fyrir neðan má lesa tillögu Hjálmars í heild sinni:

Tillaga að breyttu vinnufyrirkomulagi bæjarstjórnar Kópavogs.

Í stað núverandi fyrirkomulags, svokallaðs meirihluta/minnihlutasamstarfs, verði komið á samvinnu fulltrúa allra framboða sem eiga kjörinn fulltrúa í bæjarstjórn um starfshætti allra nefnda og ráða sem heyra undir bæjarstjórn. Oddvitum eða fulltrúum framboðanna er falið að koma sér saman um fyrirkomulag og verkaskiptingu. Nánari útfærsla á því hvernig fyrrgreind samvinna gæti litið út, er í eftirfarandi greinargerð.

Hjálmar Hjálmarsson, fulltrúi Næst Besta Flokksins.

Greinargerð.

Eftirfarandi greinargerð er einungis hugmynd, til umræðu, hvernig samstarf allra framboða í bæjarstjórn gæti litið út, en ekki endanleg útfærsla.

Úrslit kosninganna urðu á þann veg að 6 framboð hlutu kosningu og þar af 4 framboð einn fulltrúa hvert. Það er því ljóst að í nefndakerfi sem byggir á fimm fulltrúum mun alltaf einhver bera skarðan hlut frá borði. Við höfum reynt að leysa þetta vandamál með því að bjóða þeim framboðum sem eiga ekki fulltrúa í fimm mannanefnd sæti áheyrnarfulltrúa; þetta fyrirkomulag hefur verið fest í lög frá og með síðustu áramótum. Ljóst er því að flestar fimm manna nefndir eru í raun 7 manna. Hugmynd þessi byggir á því að flestar nefndir verði 7 manna og allir fulltrúar taki ábyrgð á störfum þeirra því áheyrnarfulltrúar hafa ekki atkvæðisrétt eins og fyrirkomulagið er nú.

Þetta mun ekki hafa kostnaðarauka í för með sér.

Eftirfarandi hugmynd byggir á því að líta ekki eingöngu til fjölda kjörinna fulltrúa heldur einnig að einhverju leiti til fjölda þeirra kjósenda sem greiddu framboðunum atkvæði sitt í síðustu kosningum.

Bæjarráð sem nú er skipað 5 fulltrúum og tveimur áheyrnarfulltrúm, yrði skipað 7 aðalfulltrúum.

Fulltrúi Sjálfstæðisflokks yrði formaður bæjarráðs, fulltrúi Samfylkingar yrði varaformaður bæjarráðs.

Þeir skipta með sér verkum, undirbúa og stjórna fundum bæjarráðs og vinna saman að þeim verkefnum sem tilheyrir ásamt bæjarstjóra og sviðstjórum.

Gert er ráð fyrir að formaður og varaformaður njóti sömu kjara.

Í stað núverandi fyrirkomulags, svokallaðra meirihlutafunda sem haldnir eru daginn fyrir bæjarráðsfund, eru haldnir vinnufundir með oddvitum/fulltrúum allra framboða. Þar eru verkefni bæjarráðs kynnt, viðkomandi starfsmenn gera grein fyrir málum og fulltrúar geta óskað eftir upplýsingum um tiltekin atriði. Þar getur hver og einn fulltrúi lagt fram mál, fyrirspurnir eða óskað eftir greinargerðum sem síðan er fært til bókar á fundi bæjarráðs.

Framkvæmaráð verði lagt niður. Ef brýn aðkallandi mál sem heyra undir verksvið núverandi framkvæmdaráðs getur formaður eða varformaður kallað eftir að haldinn verði aukafundur í bæjarráði og/eða auka vinnufundur.

Gert er ráð fyrir því að flestar nefndir verði 7 manna og að öll framboð eigi að minnstakosti 1 fulltrúa í hverri nefnd.

Þessi hugmynd kallar að sjálfsögðu á breytingar á bæjarmálasamþykkt Kópavogsbæjar og þarfnast umræðu og yfirlegu. Hér eftir er lýsing á því hvernig mögulega væri hægt að útfæra hugmyndina í framkvæmd.

Þá er gert ráð fyrir að stjórn allra ráða og nefnda verði með svipuðu fyrirkomulagi og í bæjarráði, þ.e. að formaður og varaformaður skipti með sér verkum, undirbúi fundi með tilheyrandi starfsmanni og njóti sömu kjara.

Þetta kann að kalla á aukin kostnað.

Hér að neðan er semsagt myndin eins og hún hefur verið teiknuð upp og eins og fyrr segir einungis hugmynd til umræðu en á engan hátt endanleg útfærsla.

Hjálmar Hjálmarsson fulltrúi Næst Besta Flokksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×