Vill ívilnun frá iðnaðarráðherra til að leigja Grímsstaði 25. janúar 2012 19:00
Kínverjinn Huang Nubo hefur á grundvelli nýlegra laga um ívilnanir sótt um undanþágu til iðnaðarráðherra til langtímaleigu á Grímsstöðum á Fjöllum í því skyni að reisa þar lúxushótel en einnig til að reisa fimm stjörnu hótel á Reykjavíkursvæðinu. Ósk Nubos í fyrrasumar um að kaupa Grímsstaði olli uppámi innan ríkisstjórnarinnar en svo fór á endanum að Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra synjaði fyrirtæki Nubos um undanþágu til að kaupa jörðina. Samfylkingarmenn með Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra og Kristján Möller, formann atvinnuveganefndar Alþingis, í broddi fylkingar, kváðust þá ætla að leita annarra leiða til að greiða götu Nubos og efndu til funda með umboðsmanni hans á Íslandi. Nú virðist farvegurinn fundinn, rúmlega ársgömul lög um ívilnanir vegna nýfjárfestinga á Íslandi en þau heimila ráðherra meðal annars að veita undanþágu frá skilyrði laga um að eignarréttur og afnotaréttur fasteigna sé í höndum íslenskra ríkisborgara. Sérstök ívilnananefnd, skipuð fulltrúum iðnaðar-, fjármála, og viðskiptaráðherra, gerir tillögu til iðnaðaráðherra, sem veitir ívilnanir. Umsókn Huang Nubo er dagsett 18. janúar og er um langtímaleigu á hluta Grímsstaða og að íslenskt fyrirtæki í hans eigu fái að reisa og reka þar 100 herbergja lúxushótel. Ennfremur að fá á Reykjavíkursvæði að reisa og reka 300 herbergja 5 stjörnu hótel. Samkvæmt upplýsingum Stöðvar 2 túlka embættismenn iðnaðarráðuneytis ívilnunarlögin svo að það sé í höndum iðnaðarráðherra að veita ívilnanir, samkvæmt lögunum, og að málið þurfi ekki að fara fyrir innanríkisráðherra. Engu síður ríkir óvissa um hvaða ráðherra muni afgreiða málið, þar sem líklegt þykir að Katrín Júlíusdóttir verði komin í barnseignarleyfi, og ekki liggur fyrir hvort það verði annar samfylkingarráðherra, sem fari tímabundið með iðnaðarráðuneytið, eða hvort búið verði að sameina það inn í nýtt atvinnuvegaráðuneyti Steingríms J. Sigfússonar, þegar kemur að ákvörðun.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira