Sport

Djokovic vann eftir ótrúlegan úrslitaleik | Þriðji stórmótssigurinn í röð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Novak Djokovic vann í dag fyrsta stórmót ársins í tennisheiminum eftir sigur á Rafael Nadal í ótrúlegri úrslitaviðureign Opna ástralska meistaramótsins. Með sigrinum vann Djokovic sitt fimmta stórmót á ferlinum en sinn þriðja titil í Ástralíu frá upphafi.

Viðureignin var ótrúleg - löng og æsispennandi. Djokovic tapaði fyrsta settinu, 7-5, en vann svo tvö næstu nokkuð örugglega, 6-4 og 6-2. Hann var á góðri leið með að vinna fjórða settið en Nadal neitaði að játa sig sigraðan og þvingaði fram oddasett eftir upphækkun, 7-6 (7-5).

Nadal virtist ætla að sigla fram úr í oddasettinu þegar hann komst í 4-2 forystu. Djokovic virtist algerlega búinn á því en náði samt á einhvern óskiljanlega máta að jafna metin og vinna hreint ótrúlegan sigur, 7-5.

Þetta er lengsta úrslitaviðureignin í 107 ára sögu mótsins en hún tók alls fimm klukkustundir og 53 mínútur. Gamla metið settu Spánverarnir Nadal og Fernando Verdasco í undanúrslitum árið 2009. Þetta er einnig lengsta úrslitaviðureign stórmóts í tennis frá upphafi.

Það er ljóst að þessarar viðureignar verður minnst sem einnar þeirra bestu í sögu íþróttarinnar.

Djokovic skráði nafn sitt í sögubækurnar með sigrinum því þar með varð hann aðeins sá fimmti frá upphafi sem vinnur þrjú stórmót í röð. Rod Laver gerði það árið 1969, Pete Sampras endurtók leikinn árið 1994, Roger Federer náði þessum árangri árið 2006 og Nadal árið 2010.

En aðeins Laver hefur unnið fjögur stórmót í röð og á Djokovic því möguleika að jafna það met með því að vinna Opna franska meistaramótið í júní.

Djokovic vann öll stórmót síðasta árs nema Opna franska en aðeins Laver hefur tekist að vinna öll stórmótin á sama árinu - það gerði hann árið 1969.

Jelena Ristic, unnusta Djokovic, studdi sinn mann.
Serbinn öflugi var nokkuð mistækur í upphafi sem Nadal færði sér í nyt. Nadal tapaði öllum sex viðureignum sínum gegn Djokovic á síðasta ári og ætlaði sér greinilega að snúa þeirri þróun við. Hann hafði betur í jöfnu fyrsta setti, 7-5.

Djokovic var þó fljótur að koma sér í takt við leikinn og náði undirtökunum með því að vinna næstu tvö settin, 6-4 og 6-2.

Fjórða settið var æsispennandi. Allt var í járnum þar til að Djokovic komst í 0-40 í stöðunni 4-3. En Nadal neitaði að játa sig sigraðan, klóraði sig út úr vonlausri stöðu og jafnaði metin í 4-4.

Þegar þarna var komið voru fjórar klukkustundir liðnar af viðureigninni og byrjað að rigna. Því þurfti að gera nokkurra mínútna hlé til að þurrka völlinn og loka þakinu á Rod Laver-leikvanginum.

Báðir héldu uppgjöf eftir þetta og þurfti því upphækkun til. Þar byrjaði Djokovic betur en sem fyrr gafst Nadal ekki upp og tókst með mikilli baráttu að vinna upphækkunina 7-5 og þar með settið 7-6.

Sem fyrr segir var oddasettið ótrúlegt. Eftir að hafa barist með kjafti og klóm í meira en fjórar klukkustundir virtust báðir, og þá sérstaklega Djokovic, algerlega búinn á því. Flestir voru byrjaðir að reikna með sigri Nadal en þá tók sá serbneski skyndilega við sér, sýndi úr hverju hann er gerður og vann hreint magnaðan sigur. Fagnaðarlætin voru eftir því.


Tengdar fréttir

Sharapova og Azarenka mætast í úrslitum

Þær Maria Sharapova og Victoria Azarenka komu nokkuð á óvart með því að sigra andstæðinga sína í undanúrslitum Opna ástralska meistaramótsins í tennis.

Djokovic vann Murray í maraþonviðureign

Það tók Novak Djokovic tæpar fimm klukkustundir að bera sigur úr býtum gegn Skotanum Andy Murray á undanúrslitum Opna ástralska meistaramótsins í dag.

Serena Williams úr leik í Ástralíu

Óvænt úrslit urðu á Opna ástralska mótinu í tennis í nótt þegar Serena Williams beið lægri hlut gegn Ekaterinu Makarovu frá Rússlandi í tveimur settum, 6-2 og 6-3.

Nadal áfram eftir hörkuslag | Wozniacki úr leik

Fyrri helming fjórðungsúrslitanna í einliðaleik karla og kvenna á Opna ástralska meistaramótsins er lokið. Roger Federer og Rafael Nadal komust báðir áfram en Caroline Wozniacki, efsta kona heims á heimslistanum, er úr leik.

Nadal sló út Federer í undanúrslitum

Rafael Nadal er kominn í úrslitin á Opna ástralska meistaramótinu í tennis eftir sigur á Roger Federer í hreint magnaðri undanúrslitaviðureign.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×