Sport

Stútaði fjórum tennisspöðum í brjálæðiskasti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kýpverjinn Marcos Baghdatis var ósáttur við frammistöðu sína í leik á opna ástralska meistaramótinu í tennis á dögunum. Tók hann reiðina út á saklausum tennisspöðum.

Baghdatis var að tapa fyrir Stanislas Wawrinka frá Sviss í annarri umferð mótsins þegar hann reiddist svona illa eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir ofan.

Baghdatis, sem komst í úrslit þessa móts árið 2006, hefur nú verið sektaður um 800 dollara fyrir atvikið.

Hann á þó nokkuð langt í land með að ná Rússanum Marat Safin sem er sagður hafa eyðilagt 1055 tennisspaða á sínum ferli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×