Sport

Hewitt féll úr leik með sæmd | Fjórðungsúrslitin klár

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Djokovic á fullu í morgun.
Djokovic á fullu í morgun. Nordic Photos / Getty Images
Ástralinn Lleyton Hewitt varð að játa sig sigraðan fyrir besta tenniskappa heims, Novak Djokovic frá Serbíu, þrátt fyrir hetjulega baráttu í 16-manna úrslitum Opna ástralska meistaramótsins í tennis.

Djokovic vann á endanum sigur, 6-1, 6-3, 4-6 og 6-3, en tapaði um leið fyrsta setti sínu á mótinu. Fyrirfram var Hewitt ekki talinn líklegur til afreka enda hafði hann fallið ansi neðarlega á heimslistanum og fékk svokallaðan Wild Card-þátttökurétt á mótinu.

Hewitt var fyrir rúmum áratug síðan í efsta sæti heimslistans en hefur lent í erfiðleikum með meiðsli síðustu árin. En hann sýndi sínar bestu hliðar á mótinu í Melbourne og lét Djokovic svo sannarlega hafa fyrir sigrinum. Viðureignin tók tæpar þrjár klukkustundir.

Hann var gríðarlega vel studdur af fjölmörgum áhorfendum á Rod Laver-vellinum í dag en þó kom fáum á óvart að Djokovic bar á endanum sigur úr býtum enda hefur Serbinn átt gríðargóðu gengi að fagna síðustu misserin. Hann vann þrjú af fjórum stórmótum síðasta árs og skákaði þar með bæði Rafael Nadal og Roger Federer.

Þetta var síðasta viðureign 16-manna úrslitanna og því ljóst hvaða keppendur mætast í fjórðungsúrslitum.

Það hefur í raun fátt komið á óvart í karlaflokki, nema þá helst að Japaninn Kei Nishikori bar sigur úr býtum gegn Jo Wilfried-Tsonga frá Frakklandi sem var raðað inn sem sjötta sterkasta keppenda mótsins.

Nishikori er fyrsti japanski karlmaðurinn sem kemst áfram í fjórðungsúrslit mótsins í meira en 80 ár.

Þeir fimm sterkustu komust allir áfram í fjórðungsúrslitin en Nishikori mætir þar Skotanum Andy Murray sem lenti ekki í vandræðum í sinni viðureign í nótt þar sem andstæðingur hans, Mikhail Kukushkin frá Kasakstan, varð að hætta í miðri viðureign vegna meiðsla. Staðan var þá 6-1, 6-1 og 1-0.

Í kvennaflokki vakti helst athygli að Serena Willaims féll úr leik eins og lesa má um hér. Maria Sharapova komst einnig áfram eftir að hafa tapað fyrsta settinu fyrir Sabine Lisicki frá Þýskalandi.

Fjórar sterkustu konur mótsins komust áfram í fjórðungsúrslitin sem hefjast á morgun.

Fyrirfram er 32 bestu keppendum mótsins samkvæmt heimslista raðað inn í mótið samkvæmt styrkleikaröð og má sjá númer þeirra innan sviga hér fyrir neðan, ef við á:

Fjórðungsúrslit karla:

Novak Djokovic, Serbíu (1) - David Ferrer, Spáni (5)

Andy Murray, Bretlandi (4) - Kei Nishikori, Japan (24)

Juan Martin del Potro, Argentínu (11) - Roger Federer, Sviss (3)

Tomas Berdych, Tékklandi (7) - Rafael Nadal, Spáni (2)

Fjórðungsúrslit kvenna:

Caroline Wozniacki, Danmörku (1) - Kim Clijsters, Belgíu (11)

Victoria Azarenka, Hvíta-Rússlandi (3) - Agnieszka Radwanska, Póllandi (8)

Ekaterina Makarova, Rússland - Maria Sharapova (4)

Sara Errani, Ítalíu - Petra Kvitova, Tékklandi (2)


Tengdar fréttir

Serena Williams úr leik í Ástralíu

Óvænt úrslit urðu á Opna ástralska mótinu í tennis í nótt þegar Serena Williams beið lægri hlut gegn Ekaterinu Makarovu frá Rússlandi í tveimur settum, 6-2 og 6-3.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×