Sport

Nadal áfram eftir hörkuslag | Wozniacki úr leik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nadal fagnaði ógurlega í dag.
Nadal fagnaði ógurlega í dag. Nordic Photos / Getty Images
Fyrri helming fjórðungsúrslitanna í einliðaleik karla og kvenna á Opna ástralska meistaramótsins er lokið. Roger Federer og Rafael Nadal komust báðir áfram en Caroline Wozniacki, efsta kona heims á heimslistanum, er úr leik.

Federer og Nadal munu nú mætast í undanúrslitum á mótinu en ljóst að þar verður barist til síðasta blóðdropa. Er það í fyrsta sinn síðan 2005 sem þeir tveir mætast í undanúrslitum á stórmóti en þeir hafa margsinnis mæst í sjálfum úrslitunum.

Federer hafði betur gegn Argentínumanninum Juan Martin del Potro í þremur settum en þetta var hans þúsundasta viðureign á ferlinum. Sá svissneski hafði mikla yfirburði í leiknum og sá Del Potro aldrei til sólar.



Berdych barðist hetjulegaNadal lenti í meiri vandræðum með sinn andstæðing, Tomas Berdych frá Tékklandi. Berdych var raðað inn sem sjöunda sterkasta keppanda mótsins og barðist hetjulega gegn Nadal, sem hefur verið að ná sínu besta fram á ný eftir að hafa verið í basli vegna meiðsla.

Berdych gerði sér lítið fyrir og vann fyrsta settið eftir upphækkun, 7-6, og var svo ótrúlega nálægt því að vinna annað setti líka þar sem upphækkun þurfti einnig til. En Nadal sýndi úr hverju hann er gerður og náði að jafna metin.

Tékkinn öflugi neitaði þó að játa sig sigraðan og vann fyrstu tvær loturnar í þriðja settinu. En þá sagði Nadal stopp, vann næstu fjórar lotur og settið 6-4.

Nadal kláraði svo leikinn með því að vinna fjórða settið einnig 6-3 en Berdych var þó aldrei langt undan. Samtals tók viðureignin rúmar fjórar klukkustundir sem sýnir hversu jöfn hún var.

Það var viðeigandi að Nadal kláraði leikinn með því að vinna síðustu lotuna 40-0, þrátt fyrir að Berdych hafði átt uppgjöfina.

Nadal mátti hafa miklu meira fyrir sínum sigri en Federer í dag og óljóst er hvort að Nadal verði þreyttari í viðureign þeirra í undanúrslitum. Federer hefur verið nálægt sínu allra besta á mótinu og ljóst að hann ætlar sér titilinn og ekkert annað.

Wozniacki bíður ennHin danska Caroline Wozniacki hefur verið samtals í 67 vikur í efsta sæti heimslistans þrátt fyrir að hafa aldrei unnið stórmót í tennis. Það er einnig ljóst að hún mun nú missa toppsæti heimslistans, í bili að minnsta kosti.

Wozniacki tapaði fyrir Kim Clijsters frá Belgíu sem á titil að verja í Melbourne. Hún hafði betur í tveimur settum, 6-3 og 7-6, og mætir Victoriu Azarenku frá Hvíta-Rússlandi í undanúrslitum. Azarenka hafði betur gegn Agnieszku Radwönsku frá Póllandi, 6-7, 6-0 og 6-2.

Fjórungsúrslitin klárast á morgunKeppni heldur áfram klukkan eitt eftir miðnætti í nótt og lýkur svo um hádegisbilið á morgun. Þá fara fram síðari viðureignirnar í fjórðungsúrslitunum og mikil spenna í loftinu.

Novak Djokovic, efsti maður heimslistans, mætir þá Spánverjanum David Ferrer sem var raðað inn sem fimmta sterkasta keppanda mótsins. Bretinn Andy Murray mun kljást við Japanann Kei Nishikori sem hefur komið mörgum á óvart í Ástralíu enda fyrsti keppandi sinnar þjóðar sem kemst áfram í fjórðungsúrslit karla í meira en 80 ár.

Fyrirfram er 32 bestu keppendum mótsins samkvæmt heimslista raðað inn í mótið samkvæmt styrkleikaröð og má sjá númer þeirra innan sviga hér fyrir neðan, ef við á:

Fjórðungsúrslit karla, á morgun:

Novak Djokovic, Serbíu (1) - David Ferrer, Spáni (5)

Andy Murray, Bretlandi (4) - Kei Nishikori, Japan (24)

Fjórðungsúrslit kvenna, á morgun:

Ekaterina Makarova, Rússland - Maria Sharapova (4)

Sara Errani, Ítalíu - Petra Kvitova, Tékklandi (2)

Undanúrslit karla:

Rafael Nadal, Spáni (2) - Roger Federer, Sviss (3)

Sigurvegarar viðureigna morgundagsins

Undanúrslit kvenna:

Kim Clijsters, Belgíu (11) - Victoria Azarenka, Hvíta-Rússlandi (3)

Sigurvegarar viðureigna morgundagsins


Tengdar fréttir

Serena Williams úr leik í Ástralíu

Óvænt úrslit urðu á Opna ástralska mótinu í tennis í nótt þegar Serena Williams beið lægri hlut gegn Ekaterinu Makarovu frá Rússlandi í tveimur settum, 6-2 og 6-3.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×