Innlent

Straumsvíkursmygl: Meintur smyglari áfram í gæsluvarðhaldi

Straumsvík.
Straumsvík.
Hæstiréttur Íslands staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóm Reykjavíkur yfir karlmanni sem er grunaður um að hafa smyglað tæpum tíu kílóum af amfetamíni, rúmlega átta þúsund MDMA töflum og talsverðu magni af sterum til landsins.

Maðurinn reyndi að smygla fíkniefnum til Straumsvíkur frá Hollandi í október á síðasta ári. Tveir menn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins.

Manninum er gert að sæta gæsluvarðhaldi til 31. janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×