Innlent

Bensínlíterinn hækkað um 12 krónur á einum mánuði

Höskuldur Kári Schram skrifar
Verð á díselolíu náði nýjum hæðum eftir að olíufélögun hækkuðu eldsneytisverð í gær. Bensínlítrinn hefur hækkað um tólf krónur á einum mánuði.

Verðhækkanir á erlendum mörkuðum, gengishrun krónunnar og skattahækkanir hafa valdið því að eldsneytisverð hefur hækkað gríðarlega á undanförnum árum. Í dag var nýtt met slegið þegar verð á díselolíu fór í fyrsta skipti yfir 252 krónur á lítrann.

Dísilolía hefur hækkað um tíu krónur á einum mánuði og bensínlítrinn um tólf krónur.

Í ársbyrjun 2005 kostaði lítri af dísilolíu 45,7 krónur en síðan þá hefur verðið fimmfaldast. Á sama tíma fór bensínlítrinn úr tæpum 99 krónum í rúmar 240 krónur.

„Þetta er auðvitað alveg svakalegt. Þarna sjáum við það að við fáum ekki einu sinni fjóra lítra af díselolíu fyrir eitt þúsund krónur þannig að við höfum aldrei séð svona há verð áður til að mynda á díselolíunni," segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB.

Er ekki orðið hreinlega of dýrt að eiga bíl?

„Jú að mörgu leyti. Það er mjög erfitt, sérstaklega fyrir þá sem hafa minna umleikis. Við höfum bent á það og reynt að höfða til stjórnvalda að það sé eðlilegt að lækka þó ekki væri nema tímabundið, þessi háu gjöld sem eru á eldsneyti. Við sjáum það að yfir 50 prósent af hverjum bensínlítra og dísilolíulítra eru skattar í ríkissjóð. Þetta eru ansi háar upphæðir," segir Runólfur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×