Innlent

Yfir 40 umferðaróhöpp í borginni

Tilkynnt var um liðlega 40 umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu í gær fyrir utan þau tilvik þar sem ökumenn hafa sjálfir gert skýrslur, en ekkert alvarlegt slys varð.

Mikill erill var hjá björgunarsveitum og lögreglu við að aðstoða fasta ökumenn og yfir 800 hringingar bárust til Neyðarlínunnar vegna ymiskonar vandræða, frá miðnætti í fyrrinótt og fram á kvöld í gær. Síðan datt allt í dúna logn.

Þessi fjöldi er langt yfir meðalatli og gæti verið met.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×