Innlent

Þjónusta Orkuveitunnar víðast komin í lag

Þjónusta Orkuveitu Reykjavíkur er víðast hvar komin í samt lag eftir að rafmagnstruflanir eða rafmagnsleysi í gærkvöldi og nótt röskuðu rekstri veitukerfa víða á Suður- og Vesturlandi.

Í tilkynningu segir að um 30 starfsmenn Orkuveitunnar hafa keppst við að koma þjónustunni í viðunandi horf. Ennþá er unnið að því að koma hitaveitum á Vesturlandi í full afköst, í Stykkishólmi, á Akranesi og í byggðum Borgarfjarðar.

Ófærð hefur hamlað því að tekist hafi að ræsa á ný hitaveituna í Úthlíð í Biskupstungum. Sex af sjö aflvélum Hellisheiðarvirkjunar, auk heitavatnsframleiðslunnar í virkjuninni, voru komnar í eðlilegan rekstur nú undir morgun.

Því er beint til viðskiptavina hitaveitna Orkuveitunnar á Vesturlandi að fara sparlega heitt vatn eftir því sem kostur er og gæta að því að hafa dyr og glugga ekki opna lengur en nauðsyn krefur meðan full þjónusta er ekki fyrir hendi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×