Eldur kom upp í spennistöð Landsnets í Hvalfirði 11. janúar 2012 09:18
Eldur kom upp í spennistöðinni Brennimelur í Hvalfirði í gærkvöldi og var slökkvilið kallað á staðinn. Vegna eldsins og gríðarlegrar seltu var ekki mögulegt að spennusetja allt tengivirkið fyrr en ráðstafanir höfðu verið gerðar vegna eldsins og seltunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsneti. Þar segir að starfsmenn Landsnets, með aðstoð slökkviliðs og fleiri, hafa unnið að hreinsun á búnaði í stöðinni í alla nótt. Hreinsuninni lauk að mestu á sjöunda tímanum í morgun og er reksturinn þar kominn í eðlilegt horf og allir notendur komnir með rafmagn. Í gærkvöldi og nótt gekk yfir landið mikið óveður sem hafði víðtæk áhrif á flutningskerfið. Rafmagnstruflanir urðu víða um land vegna hvassviðrisins og gríðarlegrar seltu einkum á suður og vesturhluta landsins. Um tíma var spennistöðin Brennimelur í Hvalfirði spennulaus og notendur á svæðinu úti. Um var að ræða umfangsmikla aðgerð og voru um 40 manns sem þátt tóku í hreinsunarstarfinu og bráðaviðgerðum. Straumleysi hjá Norðuráli varði í rúmar þrjár klukkustundir þegar rafmagn komst á hluta af stöðinni en rafmagn til Járnblendifélagsins komst ekki á fyrr en kl. 7. Ljóst er að talsverðar skemmdir hafa orðið á spennistöðinni sem eftir á að meta. Við truflanirnar í flutningskerfinu urðu skammhlaup vegna seltunnar sem ollu miklu spennuflökti víða í kerfinu. Notendur um allt land urðu varið við þetta. Ljósbogar sem fylgdu sáust víða m.a. á höfuðborgarsvæðinu Útleysingar urðu víðar í kerfinu einkum á sunnan- og vestanverðu landinu þar sem 132 kV og 66 kV flutningslínur leystu út vegna veðurs. Hluti notenda á þessu svæði urðu straumlausir um tíma og skammta þurfti rafmagn á Snæfellsnesi. Jafnframt urðu útleysingar í virkjunum á Suðvesturlandi. Flestar flutningslínur eru nú komnar í rekstur og allir notendur komnir með rafmagn. Unnið er að því að koma þeim flutningslínum sem enn eru úti í resktur til að auka öryggið. Vonast er til þess að ekki komi til frekari truflana. Veruleg selta er enn á kerfinu og fylgist Landsnet náið með þróun mála.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Sjá meira