Nýtt félag utan um Húsasmiðjuna Þórður Snær Júlíusson skrifar 11. janúar 2012 14:00 Mynd/Anton
Danska byggingavörukeðjan Bygma Gruppen A/S mun stofna nýtt félag utan um rekstur Húsasmiðjunnar á Íslandi í kjölfar þess að hún keypti rekstur fyrirtækisins. Við það munu skuldir og skuldbindingar Húsasmiðjunnar ehf. á 2,5 milljarða króna færast yfir til hins nýja félags. Möguleg endurálagning skattayfirvalda upp á 700 milljónir króna og möguleg sekt samkeppnisyfirvalda vegna meints ólögmæts samráðs Húsasmiðjunnar við samkeppnisaðila sína verða skildar eftir á gömlu kennitölunni ásamt eignum upp á 240 milljónir króna. Enn fremur munu þær 800 milljónir króna sem Bygma greiddi fyrir Húsasmiðjuna verða eftir á henni og fara upp í sektargreiðslurnar verði þær að veruleika. Þetta kemur fram í skriflegu svari Framtakssjóðs Íslands (FSÍ), fyrrum eiganda Húsasmiðjunnar við fyrirspurn Fréttablaðsins um málið. Bygma tók við rekstri Húsasmiðjunnar í byrjun árs 2012. Tilkynnt var um kaup Bygma Gruppen A/S á Húsasmiðjunni ehf., sem á og rekur Húsasmiðjuna, Blómaval, Ískraft og HGG, mánudaginn 19. desember síðastliðinn. Kaupverðið var sagt vera 3,3 milljarðar króna, sem í fólst yfirtaka á 2,5 milljarða króna skuld auk þess sem 800 milljónir króna áttu að greiðast til FSÍ, fyrrum eiganda félagsins. FSÍ hélt þó eftir ábyrgð gagnvart tveimur mögulegum skuldbindingum gagnvart íslenskum yfirvöldum, sem urðu til áður en FSÍ eignaðist félagið. Fréttablaðið greindi frá því 21. desember að FSÍ hefði auk þess haldið um 240 milljónum króna af eignum Húsasmiðjunnar þegar félagið var selt til að tryggja skaðleysi hans gagnvart annars vegar mögulegri endurálagningu opinberra gjalda vegna meintra skattabrota sem má rekja til samruna eignarhalds félaga við Húsasmiðjuna á árunum 2003-2006. Hins vegar er um að ræða mögulega sekt vegna meintra samkeppnislagabrota Húsasmiðjunnar, Byko og Úlfsins. Fyrirtækin eru grunuð um ólögmætt verðsamráð við innflutning og sölu á timbri og annarri grófvöru. Samkvæmt upplýsingum frá FSÍ verða þessar skuldbindingar skildar eftir inni í gamla Húsasmiðjufélaginu ásamt ofangreindum eignum og kaupverðinu. Bygma Gruppen A/S stofnaði tvö félög á Íslandi í nóvember og desember 2011. Annað heitir Bygma Íslands ehf. og hitt Bygma Ísland Holding ehf. Þessi félög munu halda utan um eignarhald á Húsasmiðjunni og öðrum félögum í hennar eigu.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Sjá meira