Eiturefni yfir viðmiðunarmörkum á Húsavík 11. janúar 2012 16:10
Magn díóxíns og köfnunarefnisoxíðs reyndist yfir viðmiðunarmörkum þegar útblástur frá Sorpsamlagi Þingeyinga var mældur þann 29. september 2011 en niðurstöður mælinganna bárust 5. janúar síðastliðinn. Í tilkynningu frá sorpsamlaginu segir að til viðeigandi ráðstafana hafi verið gripið. Efnin voru bæði undir viðmiðunarmörkum í mælingu sem gerð var 8. febrúar 2011. Gert er ráð fyrir að efnin verði innan viðmiðunarmarka þegar útblásturinn verður mældur að nýju í febrúar næstkomandi. „Stjórnendur samlagsins telja að hærra hlutfall lífræns úrgangs í sorpinu í sláturtíðinni í haust og breytt endsneytisnotkun hafi tímabundið aukið hlutfall efnanna í útblæstri Sorpsamlagsins," segir ennfremur en daginn sem mælingin var gerð var hlutfall sláturúrgangs um 30% sorpsins, en þá stóð sláturtíð sem hæst. „Að auki má reikna með að hlutfall lífræns úrgangs í almennu sorpi hafi verið um 25%. Þetta háa hlutfall lífræns úrgangs er talið hafa aukið tímabundið díoxin í útblæstrinum. Stjórnendur samlagsins munu nú endurskoða móttöku sína á sláturúrgangi og flokkun á lífrænum úrgangi frá almenningi." Þá er talið að sú ákvörðun sumarið 2011 að blanda dísilolíu, sem notuð er í brennara, með flotaolíu hafi aukið köfnunarefnisoxíð í útblæstrinum og hefur notkun hennar nú verið hætt. „Það er mat stjórnenda Sorpsamlags Þingeyinga að framangreindar aðgerðir lækki hlutfall díóxíns og köfnunarefnisoxíðs í útblæstrinum og að efnin séu þegar komin niður fyrir viðmiðunarmörk. Sérfræðingar munu næst mæla efnisinnihald útblásturs Sorpsamlagsins í febrúar næstkomandi."
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Sjá meira