Innlent

Bruggari á þriggja mánaða skilorð

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglumenn hella niður bruggi.
Lögreglumenn hella niður bruggi. mynd/ valli.
Þrjátíu og sex ára gamall karlmaður var í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa framleitt gambra og landa í september síðastliðnum. Í húsnæði sem hann hafði til leigu fundust ríflega 900 lítrar af gambra og 84 lítrar af landa. Áfengið fannst þegar lögreglan gerði leit í húsnæðinu. Maðurinn játaði brot sín fyrir dómi. Hann hefur ekki áður gerst brotlegur við lög.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×