Rætt um að Framsókn komi inn í meirihlutasamstarfið 19. janúar 2012 12:00 Ómar Stefánsson, er bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi.
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar vinna nú að myndun nýs meirihluta í bænum. Rætt hefur verið við Framsóknarmenn um að taka sæti Næsta besta flokksins sem sleit meirihlutasamstarfinu. Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn og formaður bæjarráðs, sagði í hádegisfréttum okkar í gær að það væri grundvallar ágreiningur milli Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksing og Framsóknarflokksins um stefnumál í Kópavogsbæ. Næst besti flokkurinn sleit meirihlutasamstarfi á þriðjudag en ágreiningur kom upp um hvernig staðið var að uppsögn Guðrúnar Pálsdóttur bæjarstjóra þótt bæjarfulltrúar allra flokka sem standa að meirihlutanum hafi verið sammála um að skipta þyrfti um bæjarstjóra. Óformlegar þreifingar hafa átt sér stað um myndun nýs meirihluta meðal allra kjörinna fulltrúa. Samkvæmt heimildum fréttastofu líta sjálfstæðismenn í Kópavogi, sem eiga flesta kjörna fulltrúa eða fjóra, svo á að skynsamlegast sé að bíða fram að kosningum, en þar á bæ er ekki talið fýsilegt að mynda nýjan meirihluta með Samfylkingunni ef flokkurinn gerir kröfu um bæjarstjórastólinn, þ.e sjálfstæðismenn geta ekki sætt sig við Guðríði Arnardóttur sem bæjarstóra. Ekki náðist í Guðríði í morgun. Hafsteinn Karlsson, bæjarfulltrúi, sagði í samtali við fréttastofu að alls kyns þreifingar væru í gangi. Hann sagði til skoðunar að Framsóknarflokkurinn kæmi inn í samstarfið og tæki sæti Næst besta flokksins, en hann sagði það þreifingar. Sjálfstæðismenn gætu myndað meirihluta með Næst besta flokknum og Framsókn en Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknar, sagði í samtali við fréttastofu í morgun að engar formlegar viðræður væru í gangi við Framsóknarmenn og ekki væri verið að mynda nýjan meirihluta með Framsóknarmönnum eins og staðan væri í dag. Fréttastofa náði tali af Hjálmari Hjálmarssyni, bæjarfulltrúa Næsta besta flokksins, rétt fyrir hádegisfréttir. Hjálmar sagðist hafa rætt óformlega við fulltrúa annarra flokka, en hann sagðist hafa slitið meirihlutasamstarfinu vegna vinnubragða Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. Hjálmar sagði að í raun væri myndun nýs meirihluta í lausu lofti í augnablikinu. Hann útilokaði ekki óbreytt meirihlutasamstarf ef samkomulag næðist.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira