Bubbi hættur á Facebook Boði Logason skrifar 19. janúar 2012 14:55 Bubbi Morthens er hættur á Facebook. mynd úr safni „
Ég nenni þessu ekki, ég hef allt annað við tímann að gera," segir Bubbi Morthens, tónlistarmaður, sem hætti á samskiptasíðunni Facebook á dögunum. Bubbi var vinsæll á síðunni og átti fleiri þúsund vini en nú segir hann að þetta sé komið gott. „Það var endalaust verið að gera fréttir úr því sem ég var að segja. Ég hugsaði bara að ég nennti ekki endalaust að vera frétt í blöðunum út af einhverju sem ég sagði á Facebook og þurfa svo að standa í því að verja mig fyrir það sem ég sagði," segir Bubbi, sem segist vera orðinn þreyttur á því að vera mest lesna fréttin á netmiðlum dag eftir dag. „Ég hef aldrei litið á Facebook sem gullæð fyrir fjölmiðla. Ég hef litið á það sem tjáningarmáta fyrir mig, fólk í kringum mig og vinahópinn," segir hann en vinir hans á Facebook voru á fjórða þúsund, að hans sögn. „Ég náttúrlega fór út af Facebook í ár og henti þá út meirihlutanum," segir hann. Hann segist halda áfram að skrifa pistla á bloggsíðu sína en kveður Facebook að sinni. Þegar blaðamaður náði á Bubba var hann að taka upp plötu sem mun heita Þorpið. „Þetta er svona þjóðlagaplata, þar sem ég sæki í ræturnar á sjáfum mér," segir hann.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Sjá meira