Hávær krafa um að flýta landsfundi Þorbjörn Þórðarson skrifar 4. janúar 2012 19:09
Nokkuð hávær krafa er um það innan Samfylkingarinnar um að flýta landsfundi flokksins og halda hann á fyrri hluta þessa árs. Flokkstjórnarmaður segir eðlilegt að forystan endurnýi umboð sitt. Litlar líkur eru á að landsfundurinn verði í vor að mati formanns framkvæmdastjórnar flokksins. Mikið hefur verið fjallað um flokksstjórnarfund Samfylkingarinnar á Hótel Hilton Nordica á föstudag í síðustu viku sem var haldinn strax að loknum þingflokksfundi. Flokksstjórn Samfylkingarinnar er æðsta ákvörðunarvald flokksins milli landsfunda. Á fundinum var fjallað um breytingar sem urðu á ráðherraliði ríkisstjórnarinnar en þar kom jafnframt fram tillaga frá níu meðlimum flokksstjórnarinnar um að boða til landsfundar á þessu ári.Í stað þess að gengið yrði til atkvæða um þessa tillögu kom fram dagskrártillaga um að vísa þessu til framkvæmdastjórnar flokksins. Framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar kemur saman næstkomandi þriðjudag til að fjalla um tillöguna á höfuðstöðvum flokksins við Hallveigarstíg. Margrét S. Björnsdóttir, stofnfélagi í Samfylkingunni og formaður framkvæmdastjórnar flokksins, baðst undan viðtali en sagðist hafa litla sem enga trú á að landsfundur yrði í vor. Hún nefndi í þessu samhengi að aðeins örfáir mánuðir væru liðnir frá síðasta landsfundi. Margrét ítrekaði að þetta væri sín skoðun og hún talaði ekki fyrir framkvæmdastjórnina í heild. Tillagan yrði rædd á þriðjudag og svo yrði það flokkstjórnar að taka endanlega ákvörðun hinn 28. janúar næstkomandi. Íris Björg Kristjánsdóttir er ein þeirra sem lagði fram tillögu um að flýta landsfundi á fundinum á Nordica á föstudag. „Þessi tillaga var mótuð af almennum félögum í flokknum, samdægurs á föstudag, og hún endurspeglar pirring almennra félagsmanna í flokknum," segir Íris Björg, en hún segir að þessrar óánægju gæti víða meðal félaga í Samfylkingunni. Hún segir hins vegar ekki að í þessu felist gagnrýni á forsætisráðherra eða ríkisstjórnina. En á þessum landsfundi sem þið viljið halda fyrr en áður hafði verið stefnt að viljið þið líka að forystan endurnýi umboð sitt? „Já, ég held að það væri mjög heppilegt að hún endurnýjaði umboð sitt en með því erum við ekki að lýsa yfir vantrausti í garð einhvers eða lýsa stuðningi við einhvern annan."
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Drengurinn kominn heim til sín Innlent Fleiri fréttir Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Sjá meira